Innlent

Fimmtán milljónir trjáplantna

Fimmtán milljónasta Landgræðsluskógaplantan var gróðursett í Smalaholti í Garðabæ, við norðanvert Vífilsstaðavatn í dag. Í ár eru liðin 15 ár frá því Skógræktarfélag Íslands hóf mikið skógræktarverkefni undir heitinu „Landgræðsluskógar". Verkefnið er umfangsmesta skógræktarátak sem ráðist hefur verið í hér á landi og hefur um 1 milljón trjáplantna verið gróðursett árlega að meðaltali á tímabilinu, samtals um 15 milljónir plantna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×