Innlent

Tölvu stolið í innbroti

Brotist var inn í húsnæði Alnæmissamtakanna á Íslandi á Hverfisgötu aðfaranótt miðvikudags og tölvu stolið. Birna Þórðardóttir, framkvæmdastjóri samtakanna, segir að gluggi hafi verið spenntur upp, rótað hafi verið til og sími eyðilagður. Engu hafi þó verið stolið utan tölvunnar. Í tölvunni var engar persónuupplýsingar að finna, einungis upplýsingar um rekstur samtakanna og áætlanir um forvarnarverkefni í grunnskólum, sem Birna segir að nýtist engum utanaðkomandi. Mesti skaðinn sé af þessum gögnum sem hún segist gjarnan vilja endurheimta.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×