Innlent

Lagði hald á tæki slippstöðvar

Fjármögnunarfyrirtæki lagði í nótt hald á hluta af tækjabúnaði sem Slippstöðin á Akureyri hefur notað við Kárahnjúka. Lögfræðingur Slippstöðvarinnar vill ekki staðfesta að fyrirtækið hafi átt tækin. Slippstöðin hefur séð um vinnu við rör inni í göngunum til Fljótsdals, en vinna þar hefur legið niðri eftir að tækin voru fjarlægð. Fyrirtækið hefur orðið fyrir miklu fjárhagslegu tjóni vegna annarra verkefna fyrirtækisins við Kárahnjúka og hefur fengið greiðslustöðvun.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×