Innlent

30% ökumanna yfir hámarkshraða

Lögreglan í Reykjavík var með sérstakar hraðamælingar í Grafarvogi í síðustu viku. Mælt var við skólana í hverfinu og í götum þar sem hámarkshraði er 30 kílómetrar á klukkustund. Nær 30 prósent þeirra ökumanna sem voru mældir reyndust vera yfir hámarkshraða og mega þeir ökumenn eiga von á sektum. Áberandi var hversu mikið fleiri aka yfir hámarkshraða í götum þar sem er 30 kílómetra hámarkshraði en í götum þar sem hámarkshraði er 50 kílómetrar. Í þessari viku verður lögreglan með hert eftirlit í Langholts- og Vogahverfi og í Grafarholti.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×