Sport

Við getum unnið Chelsea

Rafael Benitez, stjóri Liverpool, hefur gefið út þá yfirlýsingu að Chelsea liðið sé ekki ósigrandi og ætlar liði sínu stóra hluti gegn Englandsmeisturunum á næstu viku, þegar Chelsea og Liverpool mætast tvisvar sinnum á nokkrum dögum. "Chelsea eru ekki ósigrandi. Þeir eru að vísu með ansi sterkt lið og hafa bætt sig síðan í fyrra, en það höfum við líka gert," sagði Benitez. "Við lögðum þá í fyrra og ég sé ekki af hverju við ættum ekki að gera það aftur í ár. Þegar menn spila við Chelsea, mega þeir hinsvegar ekki gera mistök, því þá verður þeim refsað undir eins," sagði hann. Liðin mætast á miðvikudag í Meistaradeildinni á Anfield, þar sem búast má við að heitt verið í kolunum, því það var einmitt þar sem Liverpool sló Chelsea út úr Meistaradeildinni í fyrra. Liðin mætast svo aftur um helgina í ensku deildinni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×