Innlent

Sólveig nýr forseti Alþingis

Sólveig Pétursdóttir var kjörin forseti Alþingis við setningu þess í gær. Hún þakkaði þingmönnum það traust sem þeir sýndu henni með því að kjósa hana. "Ég á þá von heitasta á þessari stundu að góð samvinna og sáttfýsi ríki um stjórn þingsins jafnvel þótt tekist verði á um mál sem fyrir Alþingi verða lögð á þeim vetri sem í hönd fer," sagði Sólveig er hún ávarpaði þingheim. Sólveig sagði það ásetning sinn að eiga gott samstarf við þingmenn úr öllum flokkum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×