Innlent

Bílþjófa leitað

Hvítri jeppabifreið var stolið á Akureyri í nótt og óku þjófarnir sem leið lá suður til Reykjavíkur. Að sögn eiganda jeppans sást til bílsins í Hvalfjarðargöngunum klukkan 06:41 í morgun á suðurleið. Bifreiðin er af gerðinni Nissan Patrol, árgerð 1992. Jeppinn er á 38 tommu dekkjum.Skráningarnúmer bílsins er PU 267. Eigandinn biður þá sem geta gefið upplýsingar um jeppann að hafa samband í síma 898 2459 eða senda póst á netfangið trukkurinn@trukkurinn.is



Fleiri fréttir

Sjá meira


×