Innlent

25 í framboði hjá D-lista

Framboðsfrestur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík rann út klukkan 17 síðastliðinn föstudag. Þrír af núverandi borgarfulltrúum flokksins bjóða sig ekki fram að þessu sinni, þau Björn Bjarnason, Guðrún Ebba Ólafsdóttir og Guðlaugur Þór Þórðarson. Tuttugu og fimm bjóða sig fram þar sem Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Gísli Marteinn Baldursson takast á um fyrsta sætið. Tuttugu karlar og fimm konur eru í framboði í prófkjörinu sem fram fer dagana 4.-5. nóvember.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×