Innlent

Norsku konungshjónin í opinberri heimsókn í Bretlandi

Norsku konungshjónin, þau Haraldur og Sonja, eru nú stödd í þriggja daga opinberri heimsókn í Bretlandi. Hjónin voru í gær boðin velkomin af Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, en með þeim í för er Hákon krónprins Noregs og kona hans Mette-Marit sem komin er átta mánuði á leið. Heiðurskvöldverður vegna komu þeirra var í gærkvöldi. Kamilla eiginkona Karls Bretaprins tók þá þátt í sínum fyrsta opinbera konunglega viðburði eftir giftingu hennar og Karls.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×