Sport

Undir smásjá Arsenal

Áhugi enskra liða á framherjanum skæða Dirk Kuyt hjá hollenska liðinu Feyenoord virðist nú vera að kvikna á ný, því Arsene Wenger stjóri Arsenal fylgdist með Kuyt spila í gær. Vitað er að Arsenal, Tottenham, Everton og Liverpool hafa öll verið á höttunum eftir leikmanninum síðan í sumar.

Kuyt hefur verið afar iðinn við kolann í markaskorun í heimalandi sínu og á sæti í landsliðinu. Hann lætur þó ekki fréttir af áhuga enskra stórliða hafa áhrif á sig. "Það er gaman til þess að vita að þjálfari eins og Wenger sé að hafa fyrir því að koma alla leið hingað til að fylgjast með mér spila og Arsenal er auðvitað stór og góður klúbbur, en ég er ekki manngerð sem fer eitthvað að tapa mér yfir slíku," sagði hinn jarðbundni Kuyt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×