Sport

Bolton og Tottenham mætast í kvöld

Tottenham hefur aðeins tapað einum leik í vetur og eiga erfitt verkefni fyrir höndum í kvöld gegn Bolton
Tottenham hefur aðeins tapað einum leik í vetur og eiga erfitt verkefni fyrir höndum í kvöld gegn Bolton NordicPhotos/GettyImages

Einn leikur er á dagskrá í toppbaráttunni í ensku úrvalsdeildinni í kvöld klukkan 20, þar sem Bolton tekur á móti Tottenham. Bæði lið hafa byrjað mjög vel í haust og ætla sér sæti í Evrópukeppninni á næsta ári.

Bolton hefur unnið átta af síðustu ellefu leikjum sínum í öllum keppnum og er erfitt lið heim að sækja, svo að von er á mjög erfiðum leik fyrir lærisveina Martin Jol í Tottenham, sem hafa gert jafntefli við Manchester United og Arsenal í tveimur síðustu leikjum sínum.

Bolton er sem stendur í sjöunda sæti deildarinnar og Tottenham í því sjöunda, en bæði lið hafa 20 stig og geta með sigri náð þriðja sætinu, fyrir neðan nýliða Wigan og meistara Chelsea sem trjóna sem fyrr á toppnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×