Sport

Ferguson staðfestir janúarkaup

NordicPhotos/GettyImages

Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, hefur staðfest að félagið muni styrkja leikmannahóp sinn þegar opnar fyrir félagaskiptagluggann í janúar.

"Við munum kaupa leikmenn af þeirri einföldu ástæðu að hópurinn er of lítill eins og staðan er í dag. Við munum þó ekki kaupa leikmenn sem eru hjá liðum sem ætla sér stóra hluti í Meistaradeildinni og það þrengir kostinn eitthvað, en við þurfum stærri hóp vegna meiðsla okkar manna. Ég er ánægður með hópinn minn núna, en mikil meiðsli hafa orðið til þess að við höfum þurft að treysta um of á unga leikmenn," sagði Ferguson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×