Sport

Maradona var svindlari

Paul Robinson er ekki hrifinn af Diego Maradona
Paul Robinson er ekki hrifinn af Diego Maradona NordicPhotos/GettyImages

Paul Robinson, markvörður Tottenham og enska landsliðsins, hefur gefið góð fyrirheit fyrir vináttulandsleik Englands og Argentínu þann 12. nóvember næstkomandi, því á blaðamannafundi í dag sagði hann að Maradona hefði verið svindlari.

Robinson á þar auðvitað við atvikið í leik Englands og Argentínu á HM árið 1986, þegar Maradona skoraði mark með "hönd Guðs" eins og hann kallaði það sjálfur. "Ég man vel eftir þessu, því þetta var fyrsti landsleikurinn sem ég man eftir að hafa séð þegar ég var ungur og ég man hvað mér bauð við þessu. Maradona var svindlari," sagði Robinson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×