Sport

Á yfir höfði sér frekari refsingu

NordicPhotos/GettyImages

Lauren Robert gæti átt yfir höfði sér aðra refsingu sína á stuttum tíma frá félagi sínu Portsmouth, eftir að hann gagnrýndi liðið harðlega í viðtölum eftir tapið gegn Wigan um helgina.

Robert kom inná sem varamaður á móti Wigan, eftir að hann hafði verið settur á bekkinn vegna agavandamála. Að leik loknum lét hann svo dæluna ganga og gagnrýndi liðið harðlega.

"Ég spilaði aðeins 30 mínútur og enginn gaf boltann á mig. Við beittum aðeins löngum sendingum þegar þjálfarinn sagði okkur að gera allt annað, ég skil þetta ekki," sagði Robert, en áhorfendur á Fratton Park bauluðu á henn þegar han kom inná.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×