Sport

Tibúinn að mæta Argentínu

David Beckham
David Beckham NordicPhotos/GettyImages

David Beckham hefur átt eftirminnilegar stundir með enska landsliðinu þegar það hefur mætt Argentínumönnum á stórmótum og hlakkar til að mæta þeim í vináttuleik þann 12. næstkomandi.

Frægt varð þegar Beckham var rekinn af leikvelli gegn Argentínu á HM árið 1998 fyrir að sparka í Diego Simeone, en hann bætti fyrir það fjórum árum síðar á HM í Kóreu og Japan, þegar hann skoraði sigurmark Englendinga gegn Argentínu úr vítaspyrnu.

"Auðvitað vona ég að fólk muni frekar eftir vítinu mínu 2002 heldur en rauða spjaldinu ´98, en leikir þessara liða hafa alltaf verið mjög dramatískir og umtalaðir. Svo virðist sem Argentína muni spila stórt hlutverk á landsliðsferli mínum, ekki bara af því að leikurinn nú verður 50. leikur minn sem fyrirliði, heldur af því Argentína er auðvitað ein sterkasta knattspyrnuþjóð heims," sagði Beckham.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×