Sport

Ívar samdi við Reading til 2008

NordicPhotos/GettyImages

Ívar Ingimarsson hefur skrifað undir nýjan samning við fyrstu deildar liðið Reading, sem þýðir að hann verður hjá félaginu í þrjú ár til viðbótar. Ívar hefur verið í herbúðum liðsins síðan 2003, en samningur hans hefði runnið út í sumar.

Stjórnarmaðurinn John Madjeski var ánægður með ákvörðun Ívars. "Ívar hefur verið hornsteinninn í liðinu síðan hann kom hingað og hann verður eflaust einn af lykilmönnum okkar í þeirri viðleitni að koma liðinu í úrvalsdeildina."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×