Sport

Hef ekkert rætt við fulltrúa Arsenal

Fernando Torres er mjög eftirsóttur í Evrópu
Fernando Torres er mjög eftirsóttur í Evrópu NordicPhotos/GettyImages

Útsendari frá Arsenal fylgdist með Fernando Torres hjá Atletico Madrid spila um síðustu helgi og það gaf orðrómi um kaup Arsenal á framherjanum byr undir báða vængi í gær. Umboðsmaður Torres segist hinsvegar ekki hafa heyrt í neinum frá Arsenal í meira en eitt og hálft ár.

Vitað er af áhuga Arsene Wenger á hinum efnilega sóknarmanni, en þó er hæpið að Arsenal hafi efni á honum, því í samningi hans er tekið skýrt fram að hann fari ekki frá félaginu fyrir minna en 60 milljónir punda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×