Sport

Látið Crouch í friði

NordicPhotos/GettyImages

Michael Owen hefur biðlað til stuðningsmanna enska landsliðsins að baula ekki á Peter Crouch þegar hann spilar fyrir liðið, því það geti grafið undan sjálfstrausti hans. Áhorfendur bauluðu á Crouch þegar hann spilaði fyrir England gegn Austurríki í síðasta mánuði, en framherjinn leggjalangi hefur ekki skorað mark fyrir Liverpool eða enska landsliðið í 16 leikjum á tímabilinu.

"Ég held að fólk geri sér ekki alveg grein fyrir því hvað Crouch leggur af mörkum fyrir liðið og ég og margir fleiri leikmenn sem höfum góðar mætur á honum, ættum að vita hvað við erum að tala um. Sumir taka gagnrýni vel, en aðrir ekki og ég er alveg viss um að það verður ekki til að hjálpa Crouch ef áhorfendur baula á hann þegar hann er að fá sín fyrstu tækifæri með landsliðinu," sagði Owen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×