Sport

Svíar og S-Kórea skildu jöfn

Svíar náðu jafntefli gegn Suður Kóreu, 2-2 í vináttulandsleik í knattspyrnu sem fram fór í Kóreu í morgun.

Markus Rosenberg, sóknarmaður hjá Ajax skoraði jöfnunarmark Svía á 58. mínútu. Ahn Jung-hwan leikmaður franska liðsins Metz kom heimamönnum yfir á 8. mínútu en á meðan Kóreumenn voru ennþá að fagna markinu rauk Johan Elmander einn upp völlinn innan við mínútu síðar og jafnaði 1-1 fyrir Svía. Kim Young-chuls kom Kóreumönnum svo aftur yfir á 52. mínútu eftir aukaspyrnu frá Park Ji-sung, leikmanni Man Utd áður en Rosenberg jafnaði metin gegn spræku liði heimamanna sem Hollendingurinn Dick Advocaat stýrir.

Svíar léku án fyrirliðans Olaf Melberg og sóknartríósins Henrik Larsson, Freddie Ljundberg og Zlatan Ibrahimovich.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×