Sport

Leitar að varamanni fyrir Ívar

MYND/Getty

Steve Coppell, knattspyrnustjóri Reading sem Brynjar Björn Gunnarsson og Ívar Ingimarsson leika með hyggst leita að varaskífu fyrir Ívar nú á meðan hlé stendur yfir í deildum vegna landsleikja. Á stuðningsmannasíðu Reading segir að Coppell hafi augastað á Sam Sodje hjá Brentford sem á að vera til staðar ef Ívar eða félagi hans í miðverðinum, Ibrahima Sonko, skyldu meiðast.

"Við erum mjög þröngur hópur. Aðaláhyggjurnar eru að ef einhver nýr kemur gæti hann gert hópinn óstöðugan ef hann passar ekki vel inn. Þess vegna verður að velja leikmann af mikilli kostgæfni og ég ætla ekki að kaupa einhvern mann bara til þess að kaupa." sagði Coppell á stuðningsmannavef Reading.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×