Sport

Versta frammistaða sem ég hef séð

John Toshack
John Toshack NordicPhotos/GettyImages

John Toshack, landsliðsþjálfari Wales, sagði að frammistaða leikmanna sinna í tapinu gegn Kýpur í gær, hefði verið sú versta sem hann hefði séð á ævi sinni. Wales tapaði 1-0, en þetta var vináttuleikur þjóðanna.

"Ég dauðskammaðist mín að horfa upp á þetta og ég vorkenni þeim fjölda stuðningsmanna liðsins sem lögðu það á sig að koma alla leið til Kýpur til að styðja við bakið á liðinu. Ég lagði upp með ákveðna hluti í fyrri hálfleik, en þeir brugðust, svo ég gerði breytingar. Þessar breytingar gerðu aðeins illt verra og þetta er lélegasta frammistaða í landsleik sem ég hef séð. Ég veit að við vorum án lykilmanna í þessum leik, en það er engin afsökun," sagði Toshack bálreiður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×