Sport

Houston - Phoenix í beinni

Steve Nash er lykilmaður í skemmtilegu liði Phoenix og skorar að meðaltali 17 stig í leik og gefur 11 stoðsendingar
Steve Nash er lykilmaður í skemmtilegu liði Phoenix og skorar að meðaltali 17 stig í leik og gefur 11 stoðsendingar NordicPhotos/GettyImages

Leikur Houston Rockets og Phoenix Suns verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV klukkan hálf eitt í nótt. Bæði þessi lið hafa átt nokkuð erfitt uppdráttar vegna meiðsla lykilmanna, en Houston mun í nótt reyna að afstýra fimmta tapi sínu í röð.

Phoenix liðið leikur alltaf hraðan og skemmtilegan körfubolta undir dyggri stjórn Steve Nash, sem kosinn var verðmætasti leikmaður síðasta tímabils. Shawn Marion er stiga- og frákastahæstur í liði Phoenix með tæp 20 stig og 13 fráköst að meðaltali í leik.

Yao Ming er allt í öllu í liði Houston í fjarveru Tracy McGrady, sem er meiddur, en sá Kínverski skorar að meðaltali 19 stig og hirðir 9 fráköst í leik. Houston hefur reyndar tapað fimm af síðustu sjö viðureignum sínum gegn Phoenix, og þar af tveimur síðustu heimaleikjunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×