Sport

Feginn að sleppa við ákæru

Cristiano Ronaldo
Cristiano Ronaldo NordicPhotos/GettyImages

Portúgalski knattspyrnumaðurinn Cristiano Ronaldo hjá Manchester United segist feginn því að nauðgunarákæra á hendur honum hafi verið látin niður falla.

"Lögreglan hefur sett sig í samband við mig og sagt mér að fallið verði frá ákæru á hendur mér. Ég hef alltaf haldið fram sakleysi mínu og er nú feginn að þetta mál er úr sögunni," sagði Ronaldo.

Í yfirlýsingu frá Manchester United segir að menn þar á bæ séu ekki hissa á því að Ronaldo hafi sloppið vel frá málinu, því sakleysi hans hafi legið í augum uppi og bendir á að hann hafi allan tímann notið fullkomins stuðnings félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×