Sport

Ferguson ánægður með gott kvöld

Alex Ferguson og Bryan Robson halda hér á blómum við minningarathöfnina á Old Trafford
Alex Ferguson og Bryan Robson halda hér á blómum við minningarathöfnina á Old Trafford NordicPhotos/GettyImages

Alex Ferguson, stjóri Manchester United var yfir sig ánægður með kvöldið í gær, þegar hans menn unnu auðveldan sigur á West Brom í deildarbikarnum á kvöldi sem var helgað minningu George Best.

"Stuðningsmennirnir voru frábærir og heiðruðu minningu Best með góðum hætti. Það var líka frábært að ná að vinna og mér þótti lið mitt leika einstaklega vel á köflum. Sérstaklega var gaman að sjá Louis Saha snúa aftur og ná að skora mark. Ég vona svo sannarlega að þetta sé upphafið af nýjum og betri tímum hjá honum," sagði Ferguson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×