Sport

Fyrsta konan til að spreyta sig í A1

Katherine Legge er kona í krapinu
Katherine Legge er kona í krapinu NordicPhotos/GettyImages

Katherine Legge verður fyrsta konan til að spreyta sig í A1 kappakstrinum þegar hún mun reyna að komast í lið Breta síðar í mánuðinum. Hin 25 ára gamla Legge hefur ekið í Bandaríkjunum, en mun fara í prufu hjá breska liðinu dagana 9-11 desember í Dubai.

"Þetta er frábært tækifæri mig til að öðlast meiri reynslu og það væri gaman að fá tækifæri til að keppa fyrir hönd þjóðarinnar," sagði Legge. "Það verður gaman að sjá hvernig A1 og Formúla 1 eru í samanburði og ég er ævinlega þakklát yfirmönnum breska liðsins fyrir að gefa mér þetta tækifæri," sagði hún.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×