Sport

Robert fær tækifæri

Lauren Robert fær enn að byrja með hreint borð, en hann hefur verið til tómra vandræða hjá Portsmouth í vetur
Lauren Robert fær enn að byrja með hreint borð, en hann hefur verið til tómra vandræða hjá Portsmouth í vetur NordicPhotos/GettyImages

Harry Redknapp, nýráðinn stjóri Portsmouth í ensku úrvalsdeildinni, segir að vandræðagemlingurinn Laurent Robert muni byrja með hreint borð hjá sér og nefnir Robert sem einn af lykilmönnum í viðreisn liðsins sem er í mikilli fallbaráttu.

"Robert hefur mikla hæfileika og ef maður nær því rétta út úr honum, er hann frábær knattspyrnumaður. Ég hef alltaf verið hrifinn af hæfileikum hans og ef hann leggur sig fram, er hann rétti maðurinn fyrir mig. Allir verða að leggja sig fram 100% ef við eigum að ná árangri," sagði Redknapp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×