Sport

Stefán skoraði fyrir Lyn

Stefán Gíslason skoraði eitt mark norska liðsins Lyn sem vann sænska liðið Gautaborg, 3-1 Royal League eða skandinavísku meistaradeildinni í fótbolta í dag. Þar með vann Lyn báðar viðureignir liðanna í riðli 3 en leikurinn í dag fór fram á heimavelli Gautaborgar í Svíþjóð.

Þá gerðu Start og Vålerenga 3-3 jafntefli í riðli 1 þar sem Glenn Andersen jafnaði fyrir Start á lokamínútunni eftir að gestirnir höfðu leitt 1-3. Jóhannes Harðarson lék allan leikinn í liði Start. Árni Gautur Arason var ekki í leikmannahópiVålerenga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×