Sport

Liverpool vill sigur og ekkert annað

Steven Gerrard ætlar að vinna í Japan
Steven Gerrard ætlar að vinna í Japan NordicPhotos/GettyImages

"Við komum hingað til að vinna, það er svo einfalt," sagði Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, sem í dag lenti í Japan þar sem liðið tekur þátt í heimsmeistarakeppni félagsliða á næstu dögum og mætir Deportivo Saprissa frá Kosta Ríka á fimmtudaginn.

"Við erum ekki að ferðast hálfa leið yfir hnöttinn til að leika okkur og ætlum okkur að vinna þessa keppni. Það sem mann dreymir um sem knattspyrnumaður er að vinna titla og ef ég næ þessum, á ég bara eftir að vinna heimsmeistaramót landsliða og enska meistaratitilinn," sagði Gerrard.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×