Sport

Tottenham sigraði Portsmouth

Leikmenn Tottenham og Portsmouth börðust hart á White Hart Lane í kvöld
Leikmenn Tottenham og Portsmouth börðust hart á White Hart Lane í kvöld NordicPhotos/GettyImages

Lið Tottenham Hotspurs hefur ekki sagt sitt síðasta orð í toppbaráttunni í ensku úrvalsdeildinni í vetur og í kvöld vann liðið góðan sigur á botnliði Portsmouth 3-1 á heimavelli sínum. Sigurinn var þó langt frá því að vera auðveldur.

Það var hinn skemmtilegi framherji Portsmouth Lomana Lua Lua sem skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Portsmouth og liðið hafði forystu allt þar til Ledley King jafnaði metin með skalla á 56. mínútu. Mido kom Tottenham svo yfir úr vítaspyrnu á 84. mínútu og Jermain Defoe innsiglaði sigur Tottenham með góðu einstaklingsframtaki í blálokin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×