Sport

Mourinho og Ferguson gætu fengið sekt

Jose Mourinho er enn með munninn fyrir neðan nefið
Jose Mourinho er enn með munninn fyrir neðan nefið NordicPhotos/GettyImages

Nú eru ummæli þeirra Jose Mourinho og Alex Ferguson eftir leiki helgarinnar í rannsókn og svo gæti farið að báðir yrðu sektaðir fyrir gremju sína. Mourinho sakaði leikmann Wigan um að vera svindlara og Ferguson lét vafasöm orð falla um Rob Styles dómara eftir jafnteflið við Everton.

Aðgerðir Mourinho þykja öllu alvarlegri, þar sem hann skipaði varnarmanni sínum að gefa boltann ekki til baka til Wigan, eftir að leikmaður liðsins hafði viljandi sent boltann útaf eftir að félagi hans lá meiddur á vellinum. Mourinho vildi meina að leikmaðurinn sem meiddist hefði verið að svindla og sagði ekkert hafa amað að honum.

Mourinho var sektaður um 5000 pund á síðustu leiktíð fyrir að kalla menn svindlara, svo hann gæti átt yfir höfði sér annað eins í þetta skiptið ef knattspyrnusambandinu þykir hann hafa farið yfir strikið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×