Sport

Bjartsýnn á að Walcott skrifi undir nýjan samning

Theo Walcott hefur vakið mikla athygli fyrir góðan leik með Southampton, en hann er aðeins 16 ára gamall
Theo Walcott hefur vakið mikla athygli fyrir góðan leik með Southampton, en hann er aðeins 16 ára gamall NordicPhotos/GettyImages

Huw Jennings, þjálfari ungmennaliðs Southampton, segist viss um að ungstirnið Theo Walcott muni taka af allan vafa um framtíð sína fljótlega með því að gera sinn fyrsta atvinnumannasamning við félagið, en Walcott þessi er aðeins 16 ára gamall og hefur verið orðaður við Chelsea og Arsenal.

"Theo er enn bara unglingur og getur ekki skrifað atvinnumannasamning fyrr en hann verður 17 ára í mars. Honum líður vel hérna hjá félaginu og okkur hlakkar til að starfa með honum um ókomna tíð. Það er óhjákvæmilegt að ungir leikmenn sem búa yfir jafn miklum hæfileikum og hann dragi að sér nokkra athygli, en hann er partur af framtíðaráformum hjá Southampton," sagði Jennings og ætlar greinilega að reyna allt til að halda í hinn kornunga framherja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×