Sport

Norska úrvalsdeildin

Lið Árna Gauts Arasonar Valerenga komst í gær upp í annað sæti norsku úrvalsdeildarinnar. Valerenga sigraði HamKam 2-1. Start hefur forustu í deildinni með 30 stig, Vålerenga hefur 27 stig og Brann * lið Kristjáns Arnar Sigurðssonar og Ólafs Arnar Bjarnarsonar er í þriðja sæti með 24 stig. En Brann tapaði í gær fyrir Molde 1-3. Ólafur Örn spilaði allan leikinn í vörn Brann en Kristjáni var skipt út af um miðjan seinni hálfleik.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×