Davíð verður seðlabankastjóri 7. september 2005 00:01
Davíð Odddsson tilkynnti fyrir stundu á blaðamannafundi í Valhöll að hann hygðist ekki gefa kost á sér í embætti formanns Sjálfstæðisflokksins á komandi landsfundi. Þá tilkynnti hann einnig að hann hygðist láta af embætti utanríkisráðherra 27. september og taka við sem formaður bankastjórnar Seðlabankans af Birgi Ísleifi Gunnarssyni. Þær breytingar verða á ríkisstjórninni við brotthvarf Davíðs að Geir H. Haarde, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra, verður utanríkisráðherra, Árni M. Mathiesen fer úr sjávarútvegsráðuneytinu í fjármálaráðuneytið og Einar Kristinn Guðfinnsson þingflokksformaður tekur við embættti sjávarútvegsráðherra. Davíð sagði á blaðamannafundinum að hann hefði tekið ákvörðunina um að hætta fyrir skömmu og hann vonaðist til að hafa rýmri tíma til skrifta og annarra tómstunda eftir að hann færir sig yfir í Seðlabankann. Davíð Oddsson varð borgarfulltrúi árið 1974, þá 26 ára, og síðan borgarstjóri árið 1982, aðeins 34 ára gamall. Hann lét af störfum sem borgarstjóri árið 1991 og settist beint í stól forsætisráðherra. Það ár hafði hann sigur gegn Þorsteini Pálssyni í kjöri til formanns Sjálfstæðisflokksins. Davíð var forsætisráðherra í þrettán ár samfellt, lengst allra Íslendinga, en færði sig um set yfir í utanríkisráðuneytið í september í fyrra.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Kostaði umdeilda færslu á síðu flokks sem hann er hættur í Innlent Kortleggja neðanjarðarbyrgi vegna hótana Rússa Erlent Vill eyða vantrausti sem sé olía á eld rasisma Innlent Stuðningur við Trump kostaði sambandið við Elon Erlent „Girtu þig nú í brók og horfstu í augu við sjálfan þig“ Innlent Mega fresta kosningu í allt að viku verði óveður á laugardag Innlent Saksóknarar vilja Pelicot í 20 ára fangelsi Erlent Meirihluti aukinna ríkisútgjalda farið í laun og bætur Innlent Íslensk kona í haldi: Hótelherbergi á Tenerife þakið blóði Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Fleiri fréttir Þúsundir áhugasamra sjálfboðaliða en engin formleg lögreglurannsókn HR-ingar spyrja frambjóðendur spjörunum úr Segir Miðflokksmönnum að „gráta minna og brosa meira“ Segja allt of mikið gert úr hneykslismálum stjórnmálamanna Súðavíkurnefnd skipuð og hefur ár til að skila niðurstöðum Meirihluti aukinna ríkisútgjalda farið í laun og bætur Mega fresta kosningu í allt að viku verði óveður á laugardag Vill eyða vantrausti sem sé olía á eld rasisma Kölluð út vegna fiskibáts sem hafði misst vélarafl Leitaði á lögreglustöð með áverka eftir líkamsárás Virknin stöðug og bundin við nyrsta gíginn Kostaði umdeilda færslu á síðu flokks sem hann er hættur í Flugvélar og fólk skautuðu á Hafravatni Tvær á toppnum Gasmengun helsta hættan í Grindavík „Það má Guð vita“ Bælin tóm og Diegos sárt saknað: „Hann er einn af okkur“ „Girtu þig nú í brók og horfstu í augu við sjálfan þig“ Bjartsýni í Karphúsinu og kattarins Díegó leitað Lofa fullum trúnaði ef Diego verður skilað Leitaði trúnaðarupplýsinga til að staðfesta orðróm en fékk sparkið Ákærður fyrir stunguárásina á Menningarnótt Dómsmál setur áform Heidelberg í uppnám Enn talsverður kraftur í eldgosinu Bitist af mikilli hörku um atkvæði íbúa í Ölfusi Breytinga að vænta á fylgi Flokks fólksins Krapastífla hefur myndast í Ölfusá við Selfoss Hjúkrunarfræðingar samþykktu samning Sást á öryggismyndavélum þegar Diego var numinn á brott Lögreglumenn furðuðu sig á vígahnetti Sjá meira