Sport

Hamann vill nýjan samning

Dietmar Hamann olli í dag bæði Hamburg og Bolton miklum vonbrigðum er hann tilkynnti að hann ætlaði sér að vera áfram hjá Liverpool. Talið var að þýska miðjustálið væri á leið frá Anfield og hafði hann þegar talað við áður nefnd lið um hugsanlegan samning. En eftir frábæran leik í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í Istanbul á miðvikudaginn virðist sem hinn 31-árs gamli Hamann hafi skipt um skoðum og muni skrifa undir nýjan samning við Evrópumeistarana. Rafael Benitez, stjóri Liverpool, hefur áður sagt að hann vilji halda þessum fyrrum leikmanni Bayern Munchen og Newcastle og er talið að félagið muni bjóða honum í að minnsta kosti árs framlengingu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×