Innlent

Einn af íslensku bergi brotinn

Einn mannanna sjö sem handteknir voru í gær í húsleit bresku lögreglunnar er af íslensku bergi brotinn. Hann er þó ekki íslenskur ríkisborgari lengur. Fjársvikin sem um ræðir nema um þremur milljónum punda, eða 324 milljónir íslenskra króna. 140 starfsmenn efnahagsbrotalögreglunnar og almennu lögreglunnar komu að aðgerðunum í Bretlandi í gær auk þess sem einn starfsmaður efnahagsbrotalögreglunnar var hér á landi og fylgdi starfsmönnum efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra eftir. Alls tóku um 15 íslenskir lögreglumenn þátt í aðgerðunum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×