Miami Heat tapaði í nótt fyrsta leiknum sínum undir stjórn Pat Riley þegar liðið lá 115-107 á útivelli, þar sem LeBron James fór á kostum og skoraði 41 stig og gaf 10 stoðsendingar. Dwayne Wade var atkvæðamestur í liði Miami með 33 stig.
LA Clippers stöðvaði fimm leikja sigurgöngu Houston með því að vinna 89-81. Sam Cassell skoraði 22 stig fyrir Clippers en Tracy McGrady skoraði 29 stig fyrir Houston.
New York tapaði enn einum leiknum, nú fyrir Indiana 102-96. Stephon Marbury skoraði 25 stig fyrir New York, en Jermaine O´Neal var með 31 stig hjá Indiana.
Heitasta lið deildarinnar Detroit Pistons burstaði Charlotte 103-78. Chauncey Billups skoraði 21 stig fyrir Detroit, en Primos Brezec skoraði 17 fyrir Charlotte.
Memphis lagði Phoenix 91-87. Eddie House skoraði 21 stig fyrir Phoenix, en Mike Miller og Pau Gasol skoruðu 14 hvor í jöfnu liði Memphis. Þetta var fjórða tap Phoenix í síðustu fimm leikjum.
Chicago valtaði yfir Boston 118-86, en þar munaði mest um fáheyrða hittni heimamanna í Chicago fyrir utan þriggja stiga línuna, en liðið hitti úr 14 af 17 þriggja stiga skotum sínum í leiknum. Ricky Davis skoraði 21 stig fyrir Boston, en Mike Sweetney skoraði 24 fyrir Chicago og Chris Duhon setti 22 og hitti úr 6 af 7 þriggja stiga skotum sínum.
Meiðslum hrjáð lið Utah vann mjög óvæntan útisigur á Milwaukee 88-80. Mehmet Okur skoraði 14 stig og hirti 14 fráköst fyrir Utah, en Michael Redd setti 19 stig hjá Milwaukee.
Loks vann San Antonio nauman sigur á Sacramento 90-89, þar sem Michael Finley fór enn og aftur mikinn hjá San Antonio í lokin. Tony Parker skoraði 25 stig og átti 12 stoðsendingar hjá San Antonio, en Shareef Abdur-Rahim skoraði 25 stig fyrir Sacramento.