Innlent

Í fangelsi fyrir umferðarlagabrot

MYND/ÞÖK

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag karlmann í mánaðarfangelsi og til sviptingar ökuréttinda ævilangt fyrir tvö umferðalagabrot á þessu ári. Maðurinn var ákærður fyrir of hraðan akstur annars vegar og ölvunarakstur hins vegar en hann hefur áður komist í kast við lögin og verið dæmdur fyrir bæði þjófnaði og umferðarlagabrot. Hann var meðal annars sviptur ökuréttindum í tvö ár árið 2000 fyrir ölvunarakstur en sá dómur hefur ítrekunaráhrif og því er maðurinn sviptur ökuréttindum ævilangt. Hann var einnig dæmdur til að greiða allan sakarkostnað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×