Síminn: Hátt í 4000 hafa skráð sig 13. apríl 2005 00:01
Á fjórða þúsund einstaklingar hafa skráð sig fyrir meira en tveimur milljörðum króna til kaupa á hlutabréfum í Símanum hjá tveimur hópum. Forsvarsmaður söfnunarinnar á bókhaldssíðunni logiledger segir vel koma til greina að sameinast hópi Agnesar Bragadóttur. Logiledger er bókhalds- og samskiptakerfi á Netinu. Ingvar Guðmundsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir að á annað þúsund manns hafi þegar skráð sig fyrir meira en milljarði króna. Hann segir að þó að mikill áhugi sé meðal almennings, þá sé nú leitað að kjölfestufjárfesti sem geti komið inn með mikið fé og leitt hópinn. Þannig sé hinum litlu fjárfestum best borgið. Agnes Bragadóttir, fréttastjóri á Morgunblaðinu sem varpaði þessar hugmynd fyrst fram, hefur fengið frí frá störfum til að sinna svipuðu verkefni með Orra Vigfússyni og Jafet Ólafssyni. Jafet segir viðbrögðin hafa verið gífurleg og þeim hafi þegar borist tilboð frá á annað þúsund manns sem flestir vilja kaupa fyrir hálfa til fimm milljónir króna. Formlegur fundur verður haldinn hjá þeim í dag og framhaldið ákveðið. En ef tveir hópar eru komnir af stað sem vilja ná til almennings, er möguleiki að sameina þá þegar þar að kemur? Ingvar segir það að sjálfsögðu koma til greina. „Þetta verður unnið fyrst og fremst með hagsmuni heildarinnar, og þeirra sem hafa skráð sig hjá okkur, að leiðarljósi,“ segir Ingvar.
Innlent Viðskipti Mest lesið „Enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað“ Atvinnulíf Frestun sölu Íslandsbanka jákvæð fyrir markaðinn Viðskipti innlent Óljóst hvort breytingarnar bjargi rekstri Play Viðskipti innlent Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Viðskipti innlent Play í frjálsu falli Viðskipti innlent Ekki trompast við fólk í vinnu eða á fundum Atvinnulíf Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Viðskipti innlent Sölunni slegið á frest Viðskipti innlent „Síðan kemur í ljós að við erum í gjörólíkum störfum“ Atvinnulíf „Opinberi geirinn er að breytast og þar þarf mikinn fjölda verkefnastjóra“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Frestun sölu Íslandsbanka jákvæð fyrir markaðinn Sölunni slegið á frest Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Play í frjálsu falli Semja við flugfélög í Færeyjum og á Grænlandi Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Frigus fór fýluferð í Landsrétt Óljóst hvort breytingarnar bjargi rekstri Play Úlfur Þór til Firma lögmanna Eins og AirBnb og Uber en fyrir tónlistarkennslu Tvískiptur fasteignamarkaður og hækkandi vaxtabyrði „Play verður áfram íslenskt“ Sækja um leyfi á Möltu Herdís hefði frekar viljað halda vöxtum óbreyttum Hér og nú fjölgar starfsmönnum Samið um 800 íbúðir á Ásbrú Allsherjarinnköllun á krabbameinsvaldandi leikföngum Rotovia kaupir mexíkóskt fyrirtæki Íbúðaverð lækkar í fyrsta sinn frá janúar Sannfærður um að niðurstaðan verði Lyfjavali í hag Hagkerfið nái andanum og spá um tveggja prósenta hagvexti næstu ár Bein útsending: Ný þjóðhags- og verðbólguspá Landsbankans Hefur lokið störfum hjá Viðreisn en vill vera á lista Ráðist í athugun hjá Skel vegna meintrar markaðsskiptingar Icelandair í samstarf við þjóðarflugfélag Portúgals Nýir eigendur Skagans stefna á að hefja starfsemi í nóvember Segir aðför Eflingar með ólíkindum Áfram engar loðnuveiðar Rekstrarfélag Ítalíu á Frakkastíg gjaldþrota Segja fullyrðingar borgarfulltrúa um Carbfix ekki standast Sjá meira