Viðskipti innlent

Skuldir heimilanna vaxið um 19%

Skuldir íslenskra heimila hafa vaxið um 157 milljarða á einu ári, eða um heil nítján prósent. Þá eru yfirdráttarlán ívið hærri en þau voru áður en bankarnir fóru að bjóða nýju húsnæðislánin í ágúst á síðasta ári. Margir hafa nýtt sér þann kost eftir að bankarnir fóru að bjóða ný húsnæðislán, að endurfjármagna gömul lán í húsnæðiskerfi bankanna og lækka greiðslubyrði sína til muna. Það hefur þó síst dregið úr yfirdráttarlánunum sem eru ein dýrustu lán sem fólk getur tekið og bera tæplega nítján prósent vexti. Heimilin skulduðu 966,5 milljarða í júní en 813 milljarða á sama tíma fyrir rúmu ári. Skuldirnar hafa því vaxið um 157 milljarða, eða nítján prósent. Af þessum skuldum heimilanna voru rúmir 67 milljarðar yfirdráttarlán. Upphæðin sveiflast allmikið milli mánaða til hækkunar og lækkunar. Alþýðusambandið hefur þó reiknað út að yfirdráttarlán heimilanna séu nú rúmum ellefu prósentum hærri en þau voru þegar þau lækkuðu mest út af nýju húsnæðislánunum. Fara þarf aftur til ársins 1999 til að finna jafn mikla skuldasöfnun á jafn löngum tíma. Eiríkur Guðnason seðlabankastjóri segir þessa útlánaþróun mikið áhyggjuefni. Hún sé óhófleg og bankinn hafi haft áhyggjur af máinu í þónokkurn tíma. Hún torveldi hagstjórn og sé mikill verðbólguvaldur. Greiningardeild Íslandsbanka spáir því að verðbólga fari upp undir átta prósent árið 2007. Viðskiptahallinn aukist einnig hratt og stefni í þrettán prósent á þessu ári og enn meira á næsta ári. Þetta þrýsti á lækkun krónunnar sem að öllum líkindum lækki um allt að fjórðung á næstu tveimur árum. Eiríkur segir að Seðlabankinn geri sitt besta til að ná sínu verðbólgumarkmiði sem sé 2,5 prósent til lengdar. Það sé hins vegar áhyggjuefni ef einhver trúi því að verðbólgan verði átta prósent eða meiri. Eiríkur segist þó ekki leggja trúnað á það.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×