
Kjaftasöguþjóðin sýpur hveljur
Slúðurblaðamennska hefur smám saman rutt sér til rúms á Íslandi. Ekki í einni andrá heldur smátt og smátt. Þjóðin hneykslast, sýpur hveljur, fordæmir fyrirbærið en laumast til að lesa þegar enginn sér til. Einhverjir vilja einmitt réttlæta slíka blaðamennsku með þeim rökum að það sé markaður fyrir hana. Slík röksemdafærsla dugar þó skammt. Eftirspurn er ekki mælikvarði á gæði og við getum ekki boðið fólki ærumeiðingar til sölu. Við hljótum að gera þá kröfu að tillitssemi og virðing ráði ferðinni í umfjöllum fjölmiðla um einkamál fólks. Það er að segja ef fjölmiðlarnir eiga yfir höfuð að skipta sér af einkalífi fólks.
Í umræðu sem þessari vakna spurningar um hlutverk fjölmiðla. Hvað eiga fjölmiðlarnir að segja okkur og hvað kemur okkur ekki við? Frétt er hægt að skilgreina sem frásögn af atburði eða fyrirbæri sem almenning varðar um og var ekki kunnugt um áður. Slík skilgreining er þó alls ekki tæmandi og ýmislegt hlýtur að teljast fréttnæmt þótt það komi almenningi ekki beinlínis við. Það að Dísa frænka sé ólétt eða að Palli á Hofi sé HIV smitaður er vissulega líka frétt. Bara í öðrum skilningi. Spurningin er hins vegar sú hvort fjölmiðlum beri skylda til að koma slíkum fréttum á framfæri. Kemur einkalíf annarra okkur við og ef svo er hvar liggja þá mörkin?
Sumir segja að friðhelgi einkalífsins hefjist við skráargatið heima. Aðrir segja að einkalíf opinberrar persónu sé allt það sem persónan gerir þegar hún er ekki að sinna sínu opinbera hlutverki. Mörkin eru hins vegar alltaf óljós og ef til vill höfum við verið of dugleg við að dansa á línunni. Við bjóðum fjölmiðlunum inn í einkalíf okkar en hrindum þeim svo í burt í næstu andrá. Við sjáum ástæðu til að sjónvarpa brúðkaupinu okkar. Opnum heimilið upp á gátt fyrir Völu Matt í Innliti útliti og tökum fagnandi á móti sjónvarpsvélunum sem eru komnar til að skoða skítinn heima hjá okkur fyrir þáttinn Allt í drasli. Kannski er ekki að furða þótt mörkin séu óljós.
Ýmsir telja að einkalíf opinberra persóna komi almenningi við og allir hafi beinlínis rétt á að frétta af breyskleikum þeirra. Á íslandi er hins vegar ansi hæpið að tala um opinberar persónur og tilraun blaðanna til að skapa einhvers konar elítu er hálf kjánaleg. Þekktir Íslendingar eiga ekkert skylt við elítuna sem raðar sér á forsíður erlendra slúðurblaða. Þess vegna getum við ekki réttlætt slíka blaðamennsku með þeim rökum að hún tíðkist í útlöndum. Við getum ekki bara hermt eftir forsíðufréttum útlendinganna og lagt Bubba Morthens og Brad Pitt að jöfnu.
Hvers vegna ekki?
Jú vegna þess að fræga fólkið á Íslandi er ekkert sérstaklega merkilegt. Það er bara eins og þú og ég. Það býr í sömu hverfum, verslar í sömu matvörubúðum og börnin þeirra ganga í sömu skóla og börnin okkar. Fyrirsætan á forsíðu tímaritsins er kannski frænka þín og bróðir þinn er söngvari í frægustu hljómsveit landsins. Fræga fólkið í útlöndum hefur sína eigin menningu og sitt eigið samfélag. Það sendir börnin sín í skóla með öllum hinum ríku og frægu börnunum og brynjar sig frá almúganum. Hér eru stjörnurnar ekki svona ósnertanlegar. Við mætum þeim á hverjum degi og lifum og hrærumst í sama veruleika. Þess vegna verður slúður um íslenskar stjörnur aldrei neitt annað en slúður um nágrannann. Og nágrannaslúður á lítið erindi í fjölmiðla.
Ærumeiðingar eru ekkert grín og alvarleiki málsins er flestum ljós. Hins vegar getur maður vart annað en brosað út í annað. Þetta slúðurfrétta brölt Íslendinga er nefnilega dálítið hlægilegt. Það er eitthvað svo hjákátlegt að standa við kassann í Bónus og sjá þar forsíðufrétt um það að konan í næsta húsi hafi kannski haldið fram hjá manninum sínum eða að frændi hans Gumma á Hverfisgötunni sé búinn að missa 30 kíló. Smáborgarahátturinn hreinlega æpir á mann! Hvar annars staðar í 300 þúsund manna samfélagi myndi einhverjum detta til hugar að gefa út svona blöð? Fræga fólkið hér á landi hlýtur að vera óvenju frægt miðað við höfðatölu og útlendingarnir sem við erum svo gjörn á að bera okkur saman við emja af hlátri. Það er nefnilega bráðfyndið að einhvers staðar norður í ballarhafi skuli búa agnarsmá fiskimannaþjóð sem heldur úti tveimur, jafnvel þremur, tímaritum sem snúast um það eitt að slúðra um náungann. Goðsögnin um kjaftasöguþjóðina miklu virðist vera á rökum reist.
Þórgunnur Oddsdóttir - thorgunnur@frettabladid.is
Skoðun

Gamalt vín á nýjum belgjum
Guðbjörg Sveinsdóttir skrifar

Mikilvægi skólasafna – meira en bókageymsla
Jónella Sigurjónsdóttir,Þórný Hlynsdóttir,Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar skrifar

Aukinn stuðningur við ESB og NATO
Pawel Bartoszek skrifar

Það á að hafa afleiðingar að níðast á varnarlausu fólki
Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar

Börnin borga fyrir hagræðinguna í Kópavogi
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir skrifar

Hvernig er veðrið þarna uppi?
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Að leita er að læra
Ragnar Sigurðsson skrifar

Vöxtur hugverkaiðnaðar á biðstofunni
Erla Tinna Stefánsdóttir,Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar

Viska: Sterkara stéttarfélag framtíðarinnar
Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir skrifar

Þetta er ekki raunverulegt réttlæti
Snorri Másson skrifar

Ábyrgð auglýsenda á íslenskri fjölmiðlun
Daníel Rúnarsson skrifar

Vofa illsku, vofa grimmdar
Haukur Már Haraldsson skrifar

Á að láta trúð ráða ferðinni?
Ingólfur Steinsson skrifar

Kópavogur forgangsraðar í þágu kennara, barna og skólastarfs
Ásdís Kristjánsdóttir skrifar

Ofþétting byggðar í Breiðholti?
Þorvaldur Daníelsson skrifar

Trans fólk er ekki að biðja um sérmeðferð
Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar

Hvenær ber fullorðið fólk ábyrð?
Guðrún Ósk Þórudóttir skrifar

Hugsanaskekkja forsætiráðherra í Evrópumálum – Þetta eru tvö skref!
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Opið bréf til ráðherranna Hönnu Katrínar og Ingu Sæland - blóðmeramálið
Árni Stefán Árnason skrifar

Vinnubrögð Carbfix eru ámælisverð
Ólafur Sigurðsson skrifar

Öllum til hagsbóta að bæta hag nýrra Íslendinga
Marta Wieczorek skrifar

Raunveruleg úrræði óskast takk!
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

(Ó)merkilegir íbúar
Örn Smárason skrifar

Vangaveltur um ábyrgð og laun
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir skrifar

Gervigreind í daglegu lífi: 15 dæmi
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Til hvers að læra iðnnám?
Jakob Þór Möller skrifar

Komir þú á Grænlands grund
Gunnar Pálsson skrifar

Ólöglegir ópíóðar: Skaðaminnkandi þjónusta bráðnauðsynleg
Ósk Sigurðardóttir skrifar

Hlustum á náttúruna
Svandís Svavarsdóttir skrifar

Skattheimta sem markmið í sjálfu sér
Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar