Sport

Deron Williams í háskólavalið

Deron Williams, leikstjórnandi Illinois Illini í bandaríska háskólakörfuboltanum, tilkynnti í gær að hann yrði í háskólavalinu sem fram fer 28. júní næstkomandi. Williams, sem leiddi lið sitt í úrslitaleik háskólaboltans gegn Norður-Karólínu, verður að öllum líkindum einn af 10 efstu valréttum háskólavalsins. "Ég gat ekki slegið hendina á móti þessu tækifæri," sagði Williams en hann gerði nýlega samning við umboðsmann og við það segir hann sig sjálfkrafa úr háskólaboltanum. "Það hefur verið ævilangur draumur hjá mér að spila í NBA," bætti Williams við. Illinois Illini komst í úrslit háskólaboltans eftir sigur á Louisville, 72-57, en Williams og félagar biðu lægri hlut fyrir North Carolina í úrslitaleiknum, 75-70.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×