Rúnar á leið til Þórs 20. apríl 2005 00:01
Handboltakappinn Rúnar Sigtryggson er samkvæmt heimildum Fréttablaðsins búinn að ná samkomulagi við Þór á Akureyri um að þjálfa liðið á næstu leiktíð og bendir allt til þess að samningur þess efnis verði undirritaður fyrir helgi. Með því mun Rúnar snúa aftur á fornar slóðir eftir áratuga spilamennsku í Reykjavík og síðar sem atvinnumaður á Spáni og í Þýskalandi, því hann á rætur að rekja til Akureyrar og hóf sinn handboltaferil með Þór. Rúnar gekk til liðs við þýska 1. deildar liðið Eisenach fyrir þetta tímabil og spilaði með liðinu framan af móti. Á miðju tímabili var honum síðan boðin staða aðalþjálfara félagsins eftir að forveri hans ákvað skyndilega að hætta störfum. Rúnar þjálfaði liðið þó ekki í langan tíma því hann fór sömu leið nokkrum vikum síðar vegna þess að hann var ósáttur með hvernig staðið var að hinum ýmsu málum innan félagsins. "Það gæti alveg endað þannig að hann skrifaði undir fyrir helgi," sagði Skapti Hallgrímsson, formaður handknattleiksdeildar Þórs, í samtali við Fréttablaðið í gær en hann vildi þó sem minnst tjá sig um málið. "Þetta er á viðkvæmu stigi í augnablikinu og ég get ekkert staðfest," sagði Skapti. Rúnar hefur átt í viðræðum við nokkur lið síðan það spurðist út að hann væri líklega á heimleið. Í fyrstu benti margt til að hann myndi ganga til liðs við sitt gamla félag í Haukum en þar sem honum bauðst ekki staða aðalþjálfara þar ákvað Rúnar að leita á önnur mið. Grótta/KR, KA og Þór voru öll bendluð við hinn 33 ára gamla Rúnar en eins og áður segir bendir nú allt til þess að hann muni halda tryggð við sitt uppeldisfélag í Þór.
Körfubolti Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Fleiri fréttir Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Viktor Gísli öflugur gegn PSG Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn ÍBV og Grótta með sigra Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Birkir á leið til Vals á nýjan leik Segir álagið vera að drepa menn Helena verður á skjánum í vetur Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Fortnite er aðalleikurinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Derrick Rose leggur skóna á hilluna Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Óbreytt staða á toppnum í Rocket League Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Stefán fær Arsenal í heimsókn Sjá meira