Flutti viðskiptin úr SPH 27. júní 2005 00:01
Bæjarsjóður Hafnarfjarðar hefur flutt bankaviðskipti sín úr Sparisjóði Hafnarfjarðar yfir í Kaupþing banka og sparar með því u.þ.b. sextíu milljónir króna í þjónustugjöld á ári, að sögn Lúðvíks Geirssonar bæjarstjóra í viðtali við fréttastofuna í morgun. Lúðvík segir þetta þó ekki standa í neinu samhengi við atburðina í Sparisjóðnum upp á síðkastið því bærinn hafi boðið bankaþjónustuna út, ásamt ýmsum öðrum þjónustuliðum, upp úr áramótum og hagstæðasta boðið hafi komið frá KB banka. Þangað til hafi bærinn verið í viðskiptum við Sparisjóðinn, allt frá stofnun sjóðsins. Tilboð KB banka hafi einfaldlega verið átta og hálfu prósenti lægra en tilboð Sparisjóðsins. Þá hefur fréttastofan heimildir fyrir því að forráðamenn íþróttafélaganna í Hafnarfirði hafi nokkrar áhyggjur af framvindu mála í Sparisjóðnum því í stofnsamþykkt hans er ákvæði um að ákveðið hlutfall af eigin fé sjóðsins skuli renna til líknar- og menningarmála. Þeir segja að myndarleg framlög sjóðsins um margra ára skeið eigi snaran þátt í velgengni íþróttafólks frá Hafnarfirði, bæði á sviði hópíþrótta og frjálsra íþrótta.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Magga í Pfaff: „Ég man meira að segja hvar fyrsti kossinn var“ Atvinnulíf Búið að draga tennurnar úr jagúarnum Viðskipti innlent Fær nokkuð jákvæð viðbrögð þegar hann vandar sig í eldhúsinu Atvinnulíf Borguðu vaskinn sama dag og tilkynnt var um gjaldþrotið Viðskipti innlent First Water í hýbýli Ísfélagsins á Þorlákshöfn Viðskipti innlent Nýir eigendur Pylsuvagnsins á Selfossi Viðskipti innlent Vogue og forsetafrúin kveiktu strax en íslenski vinnumarkaðurinn með hindranir Atvinnulíf Ólafur Ingi: „Ég er kostuð eiginkona“ Atvinnulíf ASÍ fordæmir hækkun vaxta og Þórhallur sendi bankanum bréf Neytendur Hækka ekki verðtryggðu vextina Viðskipti innlent Fleiri fréttir Búið að draga tennurnar úr jagúarnum First Water í hýbýli Ísfélagsins á Þorlákshöfn Knattspyrnukappi á Skaganum ráðinn fjármálastjóri Nýir eigendur Pylsuvagnsins á Selfossi Borguðu vaskinn sama dag og tilkynnt var um gjaldþrotið Hækka ekki verðtryggðu vextina „Bankinn tekur höggið á sig að stórum hluta“ Mikilvægt að verja þær gjaldeyristekjur sem ferðaþjónustan aflar Kerecis fólk fjárfestir í flugi Hækka verðtryggða vexti og útskýra hvers vegna Bjarni ráðinn framkvæmdastjóri vinds og jarðvarma hjá Landsvirkjun Lækka innlánsvexti um heilt prósentustig Opna verslanir í Kringlunni á ný Nýtt veitingasvæði rís í Smáralind Kristján ráðinn til Advania Bein útsending: Raforkuöryggi, fyrir hverja? „Grindavíkuráhrifin“ að fjara út Vilja afnema álag á útsvar í Árborg á næsta ári Rekstur fríhafnarinnar seldur úr landi Vaxtalækkun gleðitíðindi en vextir ennþá „allt of háir“ Rannveig kveður: 124 fundir og „aldrei lognmolla“ Skýr merki um að verðbólga sé að hjaðna Ráðin framkvæmdastjórar hjá Sóltúni Krefst þess að Sorpa stofni hlutafélag Vaxtaákvörðun peningastefnunefndar rökstudd Tilkynnir um breytta vexti nokkrum mínútum eftir stýrivaxtalækkun Stýrivextir halda áfram að lækka Útboð SÍ stöðvað og Intuens fagnar sigri Samtökin '78 selja slotið Allir spá lægri vöxtum Sjá meira