Erlent

Milljarðar í fangelsisbyggingar

Fangelsi fyrir rúma þrjá milljarða króna eru að rísa í Írak. Bandaríkjamenn fjármagna gerð fangelsanna sem ætlað er að hýsa þær þúsundir uppreisnarmanna sem búið er að handtaka í landinu. Tíu þúsund uppreisnarmenn eru nú þegar í haldi Bandaríkjahers í Írak en þegar fangelsin verða tilbúin verður pláss fyrir allt að sextán þúsund fanga í herfangelsum í landinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×