Innlent

Ærumeiðingar í garð lögreglu:

Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í gær Björn Tómas Sigurðsson af ákærum um ærumeiðingar en hann brigslaði tveimur lögreglumönnum á heimasíðu sinni og í fjölmiðlum um að láta fíkniefnasala vita af aðgerðum lögreglunnar.

Héraðsdómur tók undir með ákæruvaldinu að með ummælunum væri freklega vegið að starfsheiðri lögreglumannanna og lögreglunnar í heild sinni. Þar sem ákæran tók hins vegar eingöngu til 234. greinar hegningarlaga, sem fjallar um móðganir, en ekki þá 235., þar sem aðdróttanir eru ræddar, þótti ekki hjá því komist að sýkna Björn Tómas.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×