Innlent

Ramsey fékk 18 mánaða dóm

Scott Ramsey, sem ákærður var fyrir að bana manni með hnefahöggi á skemmtistað í Keflavík á síðasta ári, fékk 18 mánaða dóm í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. 15 mánuðir refsingarinnar eru skilorðsbundnir. Í niðurstöðu dómsins segir að Ramsey hafi játað brotið og aldrei brotið af sér áður. Hann sé reglusamur og stundi fasta vinnu. Hann hafi ekki ætlað að vinna manninum slíkt tjón sem raun varð og afleiðingar hnefahöggsins hafi orðið mun alvarlegri en höggið hafi gefið tilefni til. Ramsey var dæmdur til að greiða foreldrum hins látna tvær milljónir króna í bætur, auk sakarkostnaðar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×