Viðskipti innlent

Salan á Sterling kom ekki á óvart

Ein af vélum Sterling.
Ein af vélum Sterling.

Greiningardeild Landsbankans segir enga lognmollu í kringum FL Group á síðustu dögum ársins. Greiningardeildin segir sölu félagsins á danska lággjaldafélaginu Sterling ekki koma á óvart enda hafi komið fram á við uppgjör þriðja ársfjórðungs að stjórnendur FL Group ætluðu að selja Sterling að hluta eða félagið allt fyrir lok árs.

Greiningardeildin segir FL Group nú nánast orðið hreint fjárfestingafélag að undanskyldum Kynnisferðum sem enn séu í efnahag félagsins. Það er í sölumeðferð. Salan endurspeglar breyttar áherslur hjá FL Group, en höfuðáherslan verður héðan í frá á fjárfestingar en ekki fjárfestingar og rekstur.

FL Group keypti Sterling af Fons undir lok október í fyrra fyrir tæpa 15 milljarða krónur miðað við þáverandi gengi dönsku krónunnar. Kaupverðið miðast við rekstrarhagnaður Sterling fyrir gjöld og fjármagnsliði (EBITDA) yrði 345 milljónir danskra króna á þessu ári. Næðist það ekki var ákvæði í samningnum þess efnis að kaupverðið gæti lækkað um allt að 500 milljónir danskra króna. Að sama skapi gat það hækkað næðist betri árangur, að sögn greiningardeildar Landsbankans.

Greiningardeildin segir í Vegvísi sínum í dag að ljóst hafi verið að árangurinn næstði ekki og því hafi verið vangaveltur um lækkun kaupverðs undir lok ársins. Deildin vísar til fréttatilkynningar frá FL Group, að þar sem segir, að salan á Sterling leiði til þess að ákvæðið fellur úr gildi.

Landsbankinn segir bókfært virði Sterling miðast við níu mánaða uppgjör, sem hafi verið í kringum 20 milljarðar króna að teknu tilliti til kaupverðs, viðbótarfjármagns sem sett var inn í rekstur Sterling, þýðingarmunar og afkomu Sterling á fyrstu níu mánuðum ársins.

Þá segir, að frekari fjárfestingar Northern Travel Holding, kaupanda Sterling, í flug- og ferðaþjónustu séu ekki útilokaðar og muni stjórnendur þreifa fyrir sér í þeim málum.

Vegvísir Landsbankans






Fleiri fréttir

Sjá meira


×