Naustið verður kínverskt veitingahús 29. nóvember 2006 02:30 Opnað hefur verið í gegnum salinn fram í endann þar sem barinn Geirstofa var áður. Aðalinngangurinn verður þar sem gengið var inn í Geirsbúð. Básarnir eru farnir á nýja staði. MYND/Anton „
Það er bara verið að rífa allt út og búa til nýjan stað,“ segir Karl Steingrímsson, eigandi Naustsins á Vesturgötu. Naustið, sem á sínum tíma þótti einn glæsilegasti veitingastaður landsins, hefur lengi ekki staðið undir væntingum um rekstur. „Við sjáum eftir Naustinu en staðurinn var barn síns tíma. Reksturinn gekk ekki upp í þeim gír sem hann var. Fasteignin verður að skila sér í arðsemi,“ segir Karl sem eignaðist húsið fyrir tólf árum. Að sögn Karls hefur engin rekstur verið í húsinu í hálft annað ár: „Svo komu þessir Kínverjar. Þeir eru með staði í Belgíu, Hollandi og Frakklandi. Þeir ætla að hasla sér völl hér.“ Karl segir innréttingar fyrir kínverska staðinn komnar til landsins og að stefnt sé að því að opna staðinn í mars. Matargerðin verði kantónísk og veitingastaðurinn í betri flokki. Innréttingar í Naustinu eru um margt sögufrægar og ófáar frásagnir sem sprottnar eru úr básunum sem fólk sat þar í. Sömuleiðis var Símonarbar á efri hæðinni goðsagnakenndur. Karl segist hafa látið mynda allar innréttingar Naustsins að ósk Árbæjarsafnsins. Öllum hlutum sem hafi haft heimildagildi, eins og ljósum, myndum og frægum básamerkingum, hafi verið komið fyrir í geymslu. „En við erum búnir að ráðstafa básunum. Helmingur fór á Hótel Látrabjarg og helmingur til pítsustaðarins Mamma Mía í Sandgerði. Þeir sem vilja vekja endurminningar úr matsal Naustsins geta sótt heim Látrabjarg eða Sandgerði,“ segir Karl Steingrímsson. Símonarbar Það stendur vart steinn yfir steini á Símonarbar þessa dagana. . Gamlir tímar Matseðlar leika nú lausum hala um gólf Naustsins. . Naustið Bráðum verður hægt að fá núðlur í Naustinu. .
Mest lesið „Við þrífumst ekki til lengdar ein“ Innlent Allt í rugli á Rauðahafi Erlent Carney og Frjálslyndir fóru með sigur af hólmi Erlent Von á allhvössum vindi og rigningu Veður Rafmagn að koma aftur á: Íslendingar lýsa mikilli óvissu Erlent Reyndu að brjótast inn í hraðbanka Innlent Allt að komast í samt lag á Spáni og í Portúgal Erlent Mikilvægt að vera betri í bakgarðinum en óvelkomnir gestir Innlent Hafi verið látinn fljúga þrátt fyrir þekkt andleg veikindi Innlent Foreldrar eigi að byrja á því að setja sjálfum sér skjátíma Innlent Fleiri fréttir Foreldrar eigi að byrja á því að setja sjálfum sér skjátíma „Við þrífumst ekki til lengdar ein“ Reyndu að brjótast inn í hraðbanka Mikilvægt að vera betri í bakgarðinum en óvelkomnir gestir „Við erum mjög háð rafmagninu“ Gyltur gjóta þrettán til sextán grísum í hverju goti Öryggi ógnað og refsingar fyrnist Starfsfólk Isavia of smeykt til að taka á kaffistofumálinu Fólk eigi ekki að breyta sínu daglega lífi vegna frásagna af hópnauðgun Sambandsleysi í suðri og óviðunandi ástand í fangelsum Vilja láta rannsaka aðild flóttateymis í máli Oscars Fangelsi oft eina úrræðið Allt á áætlun en Spánarfarar beðnir um að fylgjast með Björn tekur við af Helga Ráðist að fólki við Breiðholtsskóla um hábjartan dag Um níutíu hælisleitendur setið í fangelsi síðustu mánuði fyrir brottvísun Kryfja mál Ásthildar Lóu fyrir opnum tjöldum Saka Ingu um metnaðarleysi eftir skipun flokksmanna í stjórn Engin hópnauðgun um páskana á borði lögreglu Nýtt met slegið í fjölda giftinga Benedikt telur undanbrögð útvarpsstjóra grátleg Vill þyngri refsingar fyrir alvarleg kynferðisbrot Tekur við sem framkvæmdastjóri Bergsins Headspace Hafi verið látinn fljúga þrátt fyrir þekkt andleg veikindi Alþingi kemur saman á ný eftir páskafrí Réðust á tvo menn á göngu Fjölgun safngripa kallar á stækkun Flugsafnsins Hljóðheimur sumarsins í hættu: Mikil fækkun lóu og spóa Höllu dreymir um að fá gróðurhús á Bessastaði Bogi les sinn síðasta fréttatíma á morgun Sjá meira