Incubus til Íslands 29. nóvember 2006 11:45 Incubus á leið til landsins.
Hr. Örlygi er sönn ánægja að tilkynna um komu Incubus til Íslands og tónleika sveitarinnar í Laugardalshöll 3. mars 2007. Miðasala fyrir tónleikana hefst þriðjudaginn 12. desember. Bandaríska rokksveitin Incubus fylgir nýrri breiðskífu sinni Light Grenageds eftir með tónleikaferð um Bandaríkin, Evrópu og Asíu. Ísland er á meðal viðkomustaða í túrnum því Incubus mun í fyrsta sinn leika á tónleikum hérlendis í Laugardalshöll þann 3. mars 2007. Incubus hefur verið í fararbroddi bandarísku rokksenunar í yfir áratug og er oft nefnd í sömu andrá og hljómsveitir á borð við Deftones, Korn og Limp Bizkit. Það var hin margrómuða breiðskífa S.C.I.E.N.C.E. (1997) sem kom sveitinni á kortið innan og utan Bandaríkjanna, en með henni læddust lög á borð "A Certain Shade of Green" og "New Skin" inn vinsældarlista víða um heim. Í kjölfarið fylgdu þrjár breiðskífur sem hlotið hafa náð hjá bæði gagnrýnendum og plötukaupendum; Make Yourself (1999), Morning View (2001) og A Crow Left of the Murder (2004) - en þær tvær síðastnefndu fengu platínusölu í Bandaríkjunum. Meðal vinsælustu laga Incubus eru "Pardon Me", "Drive", "Wish You Were Here", "Circles", "Nice to Know You" og "Megalomaniac". Síðustu viku hefur nýjasta smáskífulag sveitarinnar "Anna Molly" slegið í gegn um allan heim og náð toppsætum vinsældarlista hér á landi. Þar er á ferðinni fyrsta smáskífa sjöttu breiðskífu Incubus, Light Grenageds, sem væntanleg er í plötuverslanir um heim allan í dag, þriðjudaginn 28. nóvermber. Vangaveltur eru þegar byrjaðar um hvað verði næsta smáskífulag skífunnar og eru lögin "Dig" og "Love Hurts" oftast nefnd í því sambandi, en aðdáendur sveitarinnar hafa getað hlustað á bæði lögin á MySpace síðu Incubus. Light Grenades er tekin upp í Los Angeles og Atlanta og unninn af engum öðrum en Brendan O'Brien, sem próduserað hefur skífur Pearl Jam, Bob Dylan og Rage Against The Machine. Incubus þykir með allra bestu tónleikasveitum Bandaríkjanna. Tónlist sveitarinnar teygir sig frá kröftugum rokkslögurum á borð við "Pardon Me", "Stellar", "Wish You Were Here" og "Megalomaniac" yfir í rólegri ballöður á borð við "Warning" og "Drive". Með nýja breiðskífu í farteskinu er ljóst að koma Incubus til landsins er mikill fengur fyrir íslenska rokkunnendur. Það verður kátt í höllinni laugardagskvöldið 3. mars. FERILL INCUBUS Incubus var stofnuð árið 1991 í bænum Calabas High School í Kaliforníu af bekkjafélögunum Brandon Boyd, Jose Pasillas, Mike Einziger Calabas og Alex Katunic sem þá voru aðeins 15 ára. Fönkskotið metalrokk sveitarinnar var í fyrstu undir miklum áhrifum frá Red Hot Chilli Peppers en við útskrift, þegar sveitin var farin að leika á tónleikum víða um Kaliforníu, hafði bandið þróað lengra eigin hugmyndir og tekin við að blandahip hop, trash og grunge í auknu mæli við kraftmikla rokktónlist sína. Árið 1995 gaf sveitin út sína fyrstu breiðskífu Fungus Amongus og túraði um Evrópu með Korn. Í kjölfarið fylgdi plötusamningur við risa-útgáfuna Epic. Fyrsta breiðskífa Incubus hjá Epic, S.C.I.E.N.C.E. (1997) kom sveitinni í fyrsta inn inn á vinsælarlistana. Skífunni var fylgt eftir með tónleikaferðum með böndum á borð við System of a Down og Black Sabbath og spileríi á festivölunum The Ozzfest og Warped Tour. Breiðskífan Make Yourself (2001) kom sveitinni í hóp stærstu rokksveita heims, seldist í platínusölu (yfir 1.000.000 eintök) í Bandaríkjunum þar sem lögin "Drive" og "Pardon Me" náðu miklum vinsældum. Eftir tónleikaferð með Deftones kom þriðja breiðskífa sveitarinnar Mourning View (2001) út og náði tvöfaldri platínusölu í Bandaríkunum (yfir 2.000.000 eintök) og lögin "Wish You Were Here", Warning", "Nice to Know You", "Are You In?" og "Circles" komust á vinsældarlista um allan heim. Sumarið 2003 tók þátt Incubus þáttí Lollapalooza festival túrnum með Queens og the Stone Age, Audioslave og fleirum. Upptökur úr túrnum komu út á fyrstu live plötu sveitarinnar Live at Lollapalooza. Árið 2004 kom fimmta breiðskífa sveitarinnar A Crow Left of the Murder sem gaf af sér smellina "Megalomaniac", "Talk Shows on Mute", "Sick Sad Little World" og "Agoraphobia". Skífunni var fylgt eftir með tónleikum vítt og breytt um Ameríku og Evrópu og voru tónleikar hennar í Colarado teknir upp og gefnir út sem Alive at Red Rocks DVD. Meðal annara DVD diska sem sveitin hefur sent frá sér eru When Incubus Attacks Volume 2 (2001) sem inniheldur myndbönd frá svetinni og tónleikaupptökur víðsvegar að og Morning View Sessions (2002) sem inniheldur upptöku frá fræknum tónleikum sveitarinnar í New York.
Lífið Menning Mest lesið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Lífið Úr Idolinu yfir í útvarpið Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Lífið Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Lífið Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Lífið Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Lífið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Lífið Frumsýning á Vísi: Rokkað á miðju gólfi komin sjö mánuði á leið Tónlist Hjem til jul aftur á skjáinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Frumsýning á Vísi: Rokkað á miðju gólfi komin sjö mánuði á leið „Þetta er sem betur fer ekki upp á líf og dauða“ Ævintýrin hófust þegar hann hafnaði Juilliard Enginn súr í sætu teiti í Ásmundarsal „Ég fæ morgnana til að vera bara ég“ Rokkþyrstir geta tekið gleði sína á ný Sigga Ózk verður Ariana Grande og flytur til Noregs Ávísun á eilíf vonbrigði að elta góða veðrið Frumsýning á Vísi: Landsliðsmaður gefur út lag með pabba sínum Taylor Swift jafnaði met Beyoncé á VMA Myndaveisla: Ofurfjör á Októberfest Sáu ekki fyrir sér vinsældirnar en fagna nú 36 árum Sergio Mendes höfundur Mas Que Nada látinn Gáfu tóndæmi af Barfly í beinni Aldrei séð annað eins: IceGuys seldi nítján þúsund miða Herra Hnetusmjör stoltur eftir tryllta afmælishelgi Samtalið órjúfanlegur hluti af sköpuninni Ótrúlega slakandi raftónlistarhátíð í fimmtánda skiptið Segir Marr hafa stöðvað endurkomu The Smiths Fjörutíu blaðamönnum boðið en enginn mætti Stormaði út með látum en gafst svo upp á skrifstofustarfinu Dásamar Charlie XCX þrátt fyrir orðróminn Slíðra sverðin og boða endurkomu sveitarinnar Snorri valinn á lista 20 undir 30 hjá tímaritinu IQ Valin á lista efstu tuttugu hjá Norðurlöndunum Helgi Björns með splunkunýtt tónlistarmyndband Chappell Roan biður um frið: „Konur skulda ykkur ekki skít“ Aron Can með stóra tónleika erlendis Haustinu fagnað með tónleikum á Kaffi Flóru Nýdönsk og ADHD fá hvorar tvær milljónirnar Sjá meira