Viðskipti erlent

ESB sektar Microsoft

Bill Gates, stofnandi Microsoft. ESB hefur sektað hugbúnaðarrisann Microfsoft um tæpa 27 milljarða króna fyrir að framfylgja ekki samkeppnireglum innan Evrópusambandsins.
Bill Gates, stofnandi Microsoft. ESB hefur sektað hugbúnaðarrisann Microfsoft um tæpa 27 milljarða króna fyrir að framfylgja ekki samkeppnireglum innan Evrópusambandsins. Mynd/Reuters

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) hefur sektað bandaríska hugbúnaðarrisann Microsoft um 280,5 milljónir evra, jafnvirði 26,9 milljarða íslenskra króna, fyrir að framfylgja ekki samkeppnislögum.

Málið snýr að sölu á Windows stýrikerfi Microsoft í Evrópu en ESB komst að þeirri niðurstöðu fyrir tveimur árum að hugbúnaðarrisanum bæri að gefa samkeppnisaðilum sínum í álfunni upplýsingar um innviði stýrikerfisins svo þeir geti búið til hugbúnað sem vinni betur með stýrikerfinu. Stjórnendur Microsoft segja fyrirtækið hafa brugðist við ákvæðum ESB með viðunandi hætti. Hafi það upplýst samkeppnisaðilana um innviði stýrikerfisins í lotum og verði sú síðasta 18. júlí næstkomandi.

En framkvæmdastjórn ESB er á öðru máli og greindi forsvarsmönnum Microsoft frá því í desember á síðasta ári að fyrirtækið myndi verða sektað um tvær milljónir evra, jafnvirði rúmlega 191 milljónar íslenskra króna, á dag verði það ekki við ákvæðum sambandsins. Að sögn breska ríkisútvarpsins, BBC, gæti svo farið að sektin verði hækkuð um eina milljón evrur, tæpar 96 milljónir króna, á dag.

Þá komst ESB jafnframt að þeirri niðurstöðu fyrir tveimur árum að Microsoft bæri að skilja spilarann Windows Media Player frá stýrikerfinu og sektaði fyrirtækið um 497 milljónir evra, jafnvirði rúmra 47,6 milljarða íslenskra króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×